Hér fer á eftir uppskrift af humarfrauði fyrir 8-10 manns, úr smiðju Ingólfs Einarssonar matreiðslumanns á Kaffi Horninu á Hornafirði.

  • 300 gr Humar
  • 5 – 6 mats. Humar Bragð frá NorðurÍs
  • 2 búnt fersk steinselja
  • 1/2 l. þeyttur rjómi
  • 3 dl mæjones
  • 1 1/2 bréf mararlím (ljóst tóró)
  • safi úr 1/2 sítrónu
  • 1 tsk Knorr fiskikrydd
  • 1 dl vatn

Aðferð:

Humarinn er soðinn og er hann hakkaður eða settar snöggt í matvinnsluvél, steinseljan er söxuð smátt og þessu tvennu blandað saman við mæjonesið, humar Bragðið frá NorðurÍs og fiskikryddið.

Matarlímið er leyst upp í vatni og sítrónu og það kælt. Því næst er því blandað saman við rjómann, og að endingu er rjómanum blandað saman við farsið, sett í mót og kælt.

Þessi réttur er tilvalin sem forréttur eða jafnvel á hlaðborð.